Fréttir

lotto

Var á síðustu stundu – en vann hátt í 56 milljónir

28. Jun 2024, 14:15

Heppin kona á höfuðborgarsvæðinu var ein með allar tölurnar réttar í fjórföldum lottópotti síðastliðinn laugardag. Þó mátti minnstu muna því konan, sem spilar reglulega með frestaði því ítrekað í vikunni að kaupa sér miða. Á laugardeginum var hún á ferð í bíl með eiginmanni sínum og rak þá augun auglýsingaskilti frá Lottó og lét verða af því að grípa símann og kaupa sér miða á netinu.

Fyrir vikið vann hún pottinn sem endaði í rúmlega 55,6 milljónum króna.

Aðspurð segist sú heppna ætla að greiða niður lán og styrkja valin góðgerðarmál en einnig aðstoða börn og barnabörn og láta drauminn loks rætast um að bjóða þeim öllum saman til útlanda. Þótt allt hafi farið vel að lokum er þeim spilurum sem eru gjarnan á síðustu stundu bent á að auðvelt er að gerast áskrifandi á vefsíðunni lotto.is eða í lottóappinu.

Starfsfólk Getspár/Getrauna óskar fjölskyldunni innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

vikinglotto

eurojackpot

Páskaleikur 2026

Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 15. mars til klukkan 18:40 þann 4. apríl. Dregnir verða út 20 aukavinningar þann 4. apríl, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna. Allir þeir sem kaupa 10 raða miða í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í appinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Páskaleiknu... Lesa meira

lotto

Úrslit Lottó 14. mars

Enginn var með fyrsta vinning í  Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því fimmfaldur næst. Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 800 þúsund krónur. Miðinn er í áskrift. Enginn var með Jókerinn í kvöld en ellefu miðahafar voru með 2. Vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í vinning.  Fimm miðanna ... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - 4faldur næst!

Enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því 4faldur í næsta útdrætti.  Þrír miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra tæpar 229 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur í Fjarðarkaup í Hafnarfirði, einn inn á vef okkar lotto.is og einn miðinn er í áskrift. Einn hep... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - 3faldur næst!

Enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því 3faldur í næsta útdrætti. Tveir miðahafar voru með bónusvinninginn og hlýtur hvor þeirra rúmar 240 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á vef okkar lotto.is og í Lottó appinu. Jókerinn gekk ekki út í kvöld en sex miðahafar voru með 2... Lesa meira

lotto

Lottó - tvöfaldur næst!

Potturinn verður tvöfaldur næst þar sem Lottó potturinn gekk ekki út í kvöld! Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 1,5 milljónir í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Enginn var með Jókerinn í kvöld en sex voru með 2. vinning og fær hver og einn 125 þúsund krónur fyrir það. Tveir miðar voru keyptir ... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir