Fréttir

lotto

Rúmlega áttræð vann rúmar 130 milljónir

22. May 2026, 14:52

Lottópotturinn síðastliðinn laugardag var sexfaldur og fyrsti vinningur nam rúmum 130,9 milljónum króna. Það var rúmlega áttræð kona í Reykjavík sem reyndist vera hinn heppni vinningshafi, en hún hafði keypt miðann sinn á lotto.is.

Vinningshafinn var nývöknuð á mánudagsmorgni þegar gleðisímtalið barst henni. Hún hafði enga hugmynd um að hún væri með stóra vinninginn og tók fréttunum af slíkri yfirvegun að fyrstu viðbrögðin voru einfaldlega:
„Já, hérna.“

Eftir símtalið brá þó öðru við þegar hún hringdi í son sinn og sagði honum tíðindin. Hann brást við með mun meiri tilþrifum og varð, að hennar sögn, „hoppandi glaður“.

Konan, sem býr miðsvæðis í Reykjavík, lét vinninginn ekki hafa teljandi áhrif á daglegt líf sitt. Með bros á vör nýtti hún góða veðrið í vikunni til að rölta niður á skrifstofu Íslenskrar getspár og ganga frá undirritun vinningsins.

Aðspurð um framtíðarplön sagði hún að henni hefur alltaf þótt mikilvægt að láta gott af sér leiða og því væri líklegt að vinningurinn kæmi hennar nánustu einnig til góða. Þá sagðist hún lengi hafa dreymt um að ferðast til Asíu en hingað til hefði kostnaður staðið í vegi og nú hefur hún loksins tækifæri til að láta þann draum rætast.

Við óskum vinningshafanum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning, sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu, þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

Lottó - 3. faldur næst!

Potturinn stækkar og verður 3. faldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra rúmar 448 þúsund krónur. Báðir miðarnir eru í áskrift. Einn Jókerspilari hreppti 1. vinning í kvöld og fær 2,5 milljónir fyrir það. Miðinn var keypt... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 31. október - 2-faldur næst!

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag, þar sem hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn fóru út í Lottó útdrætti kvöldsins. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fjórir voru 2. vinning fær hver þeirra 125 þúsund krónur. Einn miðinn var keyptur í Fjarðakaup, einn inn á vef okkar Lottó.is og tveir... Lesa meira

lotto

eurojackpot

„Loksins gerist eitthvað gott!“

Þrefaldur pottur upp á rúmar 45 milljónir króna fór svo sannarlega á góðan stað síðasta laugardag. Rúmlega fimmtug einstæð móðir með nokkur börn sem hefur verið að glíma við heilsubrest og tjón á heimilinu var ein með allar tölurnar réttar. „Loksins gerist eitthvað gott!“ sagði konan þegar hún kom loks upp orði. Það er... Lesa meira

lotto

Einn með 1. vinning í Lottó!

Einn heppinn miðahafi var með 1. vinning í Lottó í kvöld og fær því rúmlega 45,6 milljón krónur í vinning.  Miðinn var keyptur hér á heimasíðu okkar, lotto.is. Þá skipta fjórir miðahafar með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 160 þúsund krónur í vinning. Þrír vinningshafar eru áskrifendur en einn keypti mið... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 17. október - 3faldur næst!

Lottópotturinn verður þrefaldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í kvöld. Tveir miðahafar skipta með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 260 þúsund krónur í vinning. Annar miðinn er í áskrift og hinn var keyptur á heimasíðu okkar lotto.is. Enginn var með 1. vinning í Jóker útdrætti kvöldsins... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir