Fréttir

eurojackpot

lotto

Þurfti að fara í kalt bað eftir að vinna 70 milljónir

21. Feb 2025, 15:12

Þrír vinningshafar með samtals 150 skattfrjálsar milljónir í Lottó og EuroJackpot 

Tveir skiptu með sér fimmföldum fyrsta vinningi í Lottó um síðustu helgi og fengu tæpar 40 milljónir hvor og höfðu báðir keypt miðana í Lottóappinu. Annar þeirra var í bíltúr ásamt dóttur sinni þegar síminn hringdi og sagði þegar hann sá að það var Íslensk getspá: „Hva, eru þau að hringja í mig? Ég skulda þeim engan pening!”. Hafði hann þá gleymt því að hann hefði tryggt sér miða og varð að vonum himinlifandi með góðu fréttirnar. 

Hinn vinningshafinn var að skála í góðra vina hópi þegar hann kíkti í Lottóappið af rælni. Hann fékk félaga sinn til að fara yfir tölurnar sem staðfesti að það væri ekkert annað í stöðunni en að panta góða kampavín á borðið til að skála. Vinningshafinn sagði að það hefði verið yndislegt að fá fréttirnar um vinninginn umkringdur sínum bestu vinum sem að sjálfsögðu samglöddust innilega. 

Búðaferð sem breytir lífinu 

Á þriðjudaginn kom svo þriðji vinningur í EuroJackpot til Íslands og færði eiganda sínum tæpar 70 milljónir. Sá hafði keypt miðann sinn á sölustað, Kjörbúðinni í Garði og fór sjálfur yfir hann. Hann ætlaði þó ekki að trúa því að hann væri með fimm réttar tölur og vinning upp á tæpar 70 milljónir svo hann rétti konu sinni miðann og bað hana um að staðfesta þetta. Að því loknu sagðist vinningshafinn hreinlega hafa þurft að fara í kalt bað. Þau hjónin hafa ákveðið að þiggja fjármálaráð sem öllum vinningshöfum stendur til boða og greiða upp húsnæðislánið sitt. Það sem út af gengur verður svo sett í góða ávöxtun og haft sem varasjóður. „Tilhugsunin um að verða bæði skuldlaus og að eiga varasjóð er algjörlega ólýsanleg“, sagði vinningshafinn glaður. 

Við óskum vinningshöfunum innilega til hamingju og þökkum um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

 

lotto

Lottó - 3. faldur næst!

Potturinn stækkar og verður 3. faldur næsta laugardag þar sem enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins. Tveir skiptu með sér bónusvinningnum og fær hvor þeirra rúmar 448 þúsund krónur. Báðir miðarnir eru í áskrift. Einn Jókerspilari hreppti 1. vinning í kvöld og fær 2,5 milljónir fyrir það. Miðinn var keypt... Lesa meira

eurojackpot

EuroJackpot - 4. vinningur á Íslandi!

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld en þrír skiptu með 2. vinningi og fær hver þeirra rúmar 95,2 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Hollandi, Póllandi og Noregi. Þá voru fimm sem skiptu með sér 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 32,2 milljónir króna. Þrír miðar voru keyptir í Þýskalandi og hinir tvei... Lesa meira

eurojackpot

EurJackpot - úrslit 3. nóvember

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot að þessu sinni, en heppinn Dani var einn með 2. vinning og fær fyrir það tæpar 205 milljónir króna. Einn var með 3. vinning og fær hann rúmlega 115 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Litháen. Einn miðaeigandi var með 1. vinning í Jókernum og fær hann 2,5 milljón kr... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó 31. október - 2-faldur næst!

Lottópotturinn verður tvöfaldur næsta laugardag, þar sem hvorki 1. vinningur né bónusvinningurinn fóru út í Lottó útdrætti kvöldsins. Eins var enginn með 1. vinning í Jóker kvöldsins en fjórir voru 2. vinning fær hver þeirra 125 þúsund krónur. Einn miðinn var keyptur í Fjarðakaup, einn inn á vef okkar Lottó.is og tveir... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 30. október

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot útdrætti kvöldsins en tveir miðahafar voru með 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 133 milljónir króna í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur í Þýskalandi og einn miðinn í Noregi. Þá voru átta miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 18 milljónir. Tveir miðar voru keyptir ... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir