Fréttir

eurojackpot

Endurvaldi tölurnar og endaði með milljónir !!

20. Jun 2025, 13:21

Þriðjudaginn 17. júní, á sjálfum þjóðhátíðardegi Íslendinga, hlaut heppinn Íslendingur glæsilegan vinning í EuroJackpot – rúmar 35 milljónir króna!

Vinningshafinn, sem er kona, keypti sjálfvalsmiða í gegnum Lottóappið og ákvað að hreinsa út tölurnar sem komu fyrst upp og fá nýjar í staðinn. Sú ákvörðun reyndist sannarlega skynsöm – því hún var ein af sex heppnum Evrópubúum sem skiptu með sér öðrum vinningi.

„Ég trúði þessu varla þegar símtalið kom frá Íslenskri getspá,“ segir hún og bætir við að það hafi verið frekar erfitt að klára vinnudaginn eftir slíkar fréttir. Hún ákvað þó að bíða með að segja manninum sínum frá vinningnum þar til þau voru komin heim – svo hann gæti allavega lokið sínum degi í ró og næði.

Hjónin, sem eru rík af börnum og barnabörnum, sjá fyrir sér að nota vinninginn í skemmtilegt fjölskyldufrí þar sem allir geta notið saman. „Það er dásamlegt að geta deilt svona gleði með sínum nánustu,“ bætir hún við.

lotto

vikinglotto

eurojackpot

Páskaleikur 2026

Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 15. mars til klukkan 18:40 þann 4. apríl. Dregnir verða út 20 aukavinningar þann 4. apríl, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna. Allir þeir sem kaupa 10 raða miða í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í appinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Páskaleiknu... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 13. mars

Enginn var með 1.vinning í EuroJackpot útdrátt kvöldsins en 8 skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 35  milljónir króna í vinning.  Fimm miðar voru keyptir í Þýskalandi, einn í Slóveníu og tveir í Ungverjalandi. Þá voru sex með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 26 milljónir króna. Fjórir miðar voru keypt... Lesa meira

eurojackpot

EuroJackpot - enginn með 1. vinning

Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot kvöldsins en 6 skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 102 milljónir króna í vinning. Þrír miðar voru keyptir í Þýskalandi, einn í Finnlandi, einn í Grikklandi og einn í Svíþjóð. Þá voru 3 með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 34,3 milljónir króna. Einn miði var keyp... Lesa meira

eurojackpot

EuroJackpot - enginn með 1 vinning

Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í EuroJackpot kvöldsins. Átta skiptu með sér 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 17,2 milljónir króna. Fjórir miðar voru keyptir í Þýskalandi, einn í Grikklandi, Svíþjóð, Ungverjalandi og á Spáni. Hvorki 1. né 2. vinningur gengu út í Jóker útdrætti kvöldsins.

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 3.mars

Heppinn miðahafi í Slóveníu var einn með 1. vinning í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot og hlýtur hann rúma 1,4 milljarða króna í vinning. Enginn var með 2. vinning en níu miðahafar voru með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 11,4 milljónir króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Danmörku, Finnlandi, Grikklandi, Kró... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir