Fréttir

getraunir

Víkingar og Blikar sækja milljónir

20. Nov 2023, 13:43

Helgin var gjöful fyrir Víkinga og Blika í Getraunum. Húskerfi Víkinga fékk 13 rétta á laugardaginn á Enska getraunaseðlinn og fá Víkingar í sinn hlut rúmar 4,4 milljónir króna. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem húskerfi Víkinga slær í gegn og fær 13 rétta en félagið er eitt öflugasta félagið á landinu í sölu getrauna undir styrkri stjórn Haraldar Haraldssonar framkvæmdastjóra Víkings. 

Breiðablik lætur ekki sitt eftir liggja og það var Bliki sem var með alla leikina 13 rétta á Sunnudagsseðlinum. Fær hann fyrir það rúmar 6,6 milljónir króna í sinn hlut.   

getraunir

Vann 20,5 milljónir í getraunum

Glúrinn tippari vann 20,5 milljónir króna á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag þegar hann var einn Íslendinga með 13 rétta. Tipparinn sem keypti miðann á sölustað í Reykjavík, þrítryggði 5 leiki og tvítryggði 3 leiki. 5 leikir voru með einu merki. Síðasti leikurinn á seðlinum var leikur Nottingham Forest geg... Lesa meira

vikinglotto

eurojackpot

getraunir

Vetrartími í Evrópu

Nú er vetrartíminn genginn í garð víðast hvar í Evrópu og hefur það áhrif á hvenær lokað er fyrir sölu í Vikinglotto, EuroJackpot og á Enska getraunaseðlinum. Lokað er fyrir sölu klukkan 17:00 á miðvikudögum í Vikinglotto, klukkan 18:00 á þriðjudögum og föstudögum í EuroJackpot og klukkan 14:00 á laugardögum á Enska ge... Lesa meira

getraunir

Skagamenn gleðjast í getraunum

Félagakerfi ÍA sló í gegn og fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag. Vinningurinn var um 900 þúsund krónur. Fjölmargir Skagamenn eru þátttakendur í félagakerfinu og fá þeir allir glaðning í sinn hlut. Einn tippari til viðbótar var með 13 rétta en sá er búsettur í Borgarnesi, steinsnar frá Akranes... Lesa meira

1x2

getraunir

Fékk 13 rétta tvisvar í röð

Glúrinn tippari var með alla leikina 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum og fær rúma milljón krónur í vinning. Ekki nóg með það heldur var hann líka með alla leikina rétta á síðasta Sunnudagsseðli og hlaut þá tæpar 200.000 krónur í vinning. Tipparinn býr á Akureyri og styður Skautafélag Akureyrar. Einn tippari var með alla ... Lesa meira

getraunir

Einn tippari með 128 milljónir

Enski getraunaseðillinn reyndist tippurum erfiður um helgina og settu fimm jafntefli á seðlinum strik í reikning margra. Enda fór það svo að aðeins einn sænskur tippari var með alla leikina 13 rétta. Alltaf þegar aðeins einn tippari er með alla leikina rétta fær hann tryggðar í sinn hlut 10 milljónir sænskra króna eða ... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir