Fréttir

lotto

Fékk 20 milljóna króna símtal !

2. Feb 2024, 13:54

Hún átti erfitt með að leyna tilfinningum sínum, konan sem fékk símtal frá Íslenskri getspá.  En það símtal var tilkynning um að hún hefði verið ein með allar tölur réttar í Lottó síðasta laugardag sem tryggði henni tvöfaldan pott; rétt rúmar 20 skattfrjálsar milljónir króna.

Konan er á fimmtugsaldri og býr á höfuðborgarsvæðinu en hún og hennar nánasta fjölskylda hefur að undanförnu tekist á við sorg og erfiðar tilfinningar í kjölfar fráfalls náins fjölskyldumeðlims. Taldi hún því allar líkur á að hún hefði fengið dálitla hjálp að handan því í stað sinna hefðbundnu lottótalna ákvað hún á síðustu stundu að velja sjálfval á lotto.is – sem skilaði henni stóra vinningnum síðastliðið laugardagskvöld og langþráðum gleðitárum um leið.

Starfsfólk Getspár/Getrauna óskar vinningshafanum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir fatlað fólk, sem og íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af allri sölu Lottó.

lotto

vikinglotto

eurojackpot

Páskaleikur 2026

Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 15. mars til klukkan 18:40 þann 4. apríl. Dregnir verða út 20 aukavinningar þann 4. apríl, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna. Allir þeir sem kaupa 10 raða miða í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í appinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Páskaleiknu... Lesa meira

lotto

Úrslit Lottó 14. mars

Enginn var með fyrsta vinning í  Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því fimmfaldur næst. Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 800 þúsund krónur. Miðinn er í áskrift. Enginn var með Jókerinn í kvöld en ellefu miðahafar voru með 2. Vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í vinning.  Fimm miðanna ... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - 4faldur næst!

Enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því 4faldur í næsta útdrætti.  Þrír miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra tæpar 229 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur í Fjarðarkaup í Hafnarfirði, einn inn á vef okkar lotto.is og einn miðinn er í áskrift. Einn hep... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - 3faldur næst!

Enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því 3faldur í næsta útdrætti. Tveir miðahafar voru með bónusvinninginn og hlýtur hvor þeirra rúmar 240 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á vef okkar lotto.is og í Lottó appinu. Jókerinn gekk ekki út í kvöld en sex miðahafar voru með 2... Lesa meira

lotto

Lottó - tvöfaldur næst!

Potturinn verður tvöfaldur næst þar sem Lottó potturinn gekk ekki út í kvöld! Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 1,5 milljónir í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Enginn var með Jókerinn í kvöld en sex voru með 2. vinning og fær hver og einn 125 þúsund krónur fyrir það. Tveir miðar voru keyptir ... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir