Fréttir

lotto

Lottó breytist í úr 5/42 í 5/45

18. May 2025, 23:07

Í dag breytist Lottó leikurinn úr því að vera Lottó 5/42 yfir í að vera Lottó 5/45. Áfram verða valdar 5 tölur í hverri röð. Þetta er aðeins í fjórða sinn sem Lottó leiknum er breytt frá því að Lottó hóf göngu sína á Íslandi árið 1986.

Breytingin er til komin vegna þess að Íslendingum hefur fjölgað umtalsvert á liðnum árum. Leikjaformúlan í Lottó verður að þróast, annarsvegar með mannfjölda og hinsvegar með þátttöku í Lottó. Þannig tryggjum við að Lottó verði áfram vinsælast leikurinn á Íslandi - „Lottó - Leikurinn okkar“.  

Hér eftir sem hingað til mun allur ágóði af sölu Lottó 5/45 renna til Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, ÖBÍ réttindasamtaka og Ungmennafélags Íslands.

lotto

vikinglotto

eurojackpot

Páskaleikur 2026

Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 15. mars til klukkan 18:40 þann 4. apríl. Dregnir verða út 20 aukavinningar þann 4. apríl, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna. Allir þeir sem kaupa 10 raða miða í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í appinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Páskaleiknu... Lesa meira

lotto

Úrslit Lottó 14. mars

Enginn var með fyrsta vinning í  Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því fimmfaldur næst. Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 800 þúsund krónur. Miðinn er í áskrift. Enginn var með Jókerinn í kvöld en ellefu miðahafar voru með 2. Vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í vinning.  Fimm miðanna ... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - 4faldur næst!

Enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því 4faldur í næsta útdrætti.  Þrír miðahafar voru með bónusvinninginn og fær hver þeirra tæpar 229 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur í Fjarðarkaup í Hafnarfirði, einn inn á vef okkar lotto.is og einn miðinn er í áskrift. Einn hep... Lesa meira

lotto

Úrslit í Lottó - 3faldur næst!

Enginn var með 1. vinning í Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því 3faldur í næsta útdrætti. Tveir miðahafar voru með bónusvinninginn og hlýtur hvor þeirra rúmar 240 þúsund krónur í vinning. Miðarnir voru keyptir á vef okkar lotto.is og í Lottó appinu. Jókerinn gekk ekki út í kvöld en sex miðahafar voru með 2... Lesa meira

lotto

Lottó - tvöfaldur næst!

Potturinn verður tvöfaldur næst þar sem Lottó potturinn gekk ekki út í kvöld! Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 1,5 milljónir í sinn hlut. Miðinn var keyptur í Lottó appinu. Enginn var með Jókerinn í kvöld en sex voru með 2. vinning og fær hver og einn 125 þúsund krónur fyrir það. Tveir miðar voru keyptir ... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir