Fréttir

Ný greiðsluleið – Aur

16. Sep 2024, 08:29

Nú er hægt að skrá Aur sem greiðsluleið til kaupa á miðum, leggja inn og taka útaf spilareikning. Til að geta nýtt sér Aur, þarf að vera með Aur appið og virkan aðgang. Í Aur appinu er gefið upp kort (debet eða kredit) til að taka út af og bankareikningur til að leggja inná.

Notendur velja síðan Aur sem greiðsluleið á spilareikning sinn á mínum síðum. Eingöngu er hægt að skrá Aur reikning sem er á sömu kennitölu og spilareikningur og allar færslur þarf að samþykkja í Aur appinu.

Kosturinn við að nota Aur er að úttektir af spilareikning skila sér án tafar á þann bankareikning sem viðskiptavinur hefur valið í Aur appinu.

Ekki er hægt að skrá Aur fyrir áskriftir.

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 17.mars

Enginn var með 1. vinning í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot en fjórir miðahafar voru með 2. vinning og hlýtur hver þeirra rúmar 50 milljónir í vinning. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi, Póllandi, Þýskalandi og á Spáni. Þá voru fimm miðahafar með 3. vinning og fær hver þeirra tæpar 22,6 milljónir króna í sinn hlut. Þr... Lesa meira

getraunir

Vann 17,4 milljónir á Enska getraunaseðilinn

Hann var heldur betur lukkulegur tipparinn sem fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag, en seðillinn skilaði honum 17.4 milljónum króna í vinning. Tipparinn var orðinn verulega stressaður fyrir síðasta leikinn á getraunaseðlinum en það var viðureign West Ham og Man. City sem hófst klukkan átta á l... Lesa meira

lotto

vikinglotto

eurojackpot

Páskaleikur 2026

Íslensk getspá er með aukaleik frá og með 15. mars til klukkan 18:40 þann 4. apríl. Dregnir verða út 20 aukavinningar þann 4. apríl, hver vinningur er EIN MILLJÓN króna. Allir þeir sem kaupa 10 raða miða í Lottó, Vikinglotto eða EuroJackpot á netinu, í appinu eða á sölustöðum verða sjálfkrafa þátttakendur í Páskaleiknu... Lesa meira

lotto

Úrslit Lottó 14. mars

Enginn var með fyrsta vinning í  Lottó útdrætti kvöldsins og verður potturinn því fimmfaldur næst. Einn var með bónusvinninginn og fær hann rúmar 800 þúsund krónur. Miðinn er í áskrift. Enginn var með Jókerinn í kvöld en ellefu miðahafar voru með 2. Vinning og fær hver þeirra 125 þúsund krónur í vinning.  Fimm miðanna ... Lesa meira

eurojackpot

Úrslit í EuroJackpot 13. mars

Enginn var með 1.vinning í EuroJackpot útdrátt kvöldsins en 8 skiptu með sér 2. vinning og fær hver þeirra rúmar 35  milljónir króna í vinning.  Fimm miðar voru keyptir í Þýskalandi, einn í Slóveníu og tveir í Ungverjalandi. Þá voru sex með 3. vinning og fær hver þeirra rúmar 26 milljónir króna. Fjórir miðar voru keypt... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir