Tveir tipparar hjá Hetti Egilsstöðum voru á skotskónum um helgina þegar þeir fengu báðir 13 rétta. Annar tippaði á Enska seðilinn á laugardaginn og hinn daginn eftir á Sunnudagsseðilinn. Tipparinn sem tippaði á Enska seðilinn og fékk 13 rétta fékk 9,4 milljónir í sinn hlut og var að vonum ánægður. Hann heyrði svo í félaga sínum hjá Hetti á laugardagskvöldinu og sagði frá vinningnum og hvaða kerfi hann hafði notað. Félaganum leist svo vel á kerfið að hann notaði það til að tippa á Sunnudagsseðilinn og viti menn, hann fékk líka 13 rétta og 2.7 milljónir í sinn hlut. Kerfið árangursríka er R 9-0-1081 þar sem fjórir leikir eru með einu tákni og níu leikir með þrem táknum og Ú merki. Seðillinn kostaði 14.053 krónur.Þess má geta að báðir tippararnir taka þátt í getraunadeild Hattar en þar keppa 20 lið um meistaratitilinn og leika tvöfalda umferð á sama hátt og leikið er í ensku úrvalsdeildinni. Alls skipa 70 - 80 manns þessi 20 lið. Tipparinn sem fékk 13 rétta vann sinn leik í getraunadeildinni með 13 réttum gegn 10 réttum andstæðinganna.
Tengdar fréttir
getraunir
Þrír glúrnir tipparar voru með 13 leiki rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og fá þeir í sinn hlut um 650 þúsund krónur. Einn tipparanna styður við bakið á Fjölni, annar við Víking og sá þriðji styður Breiðablik.
getraunir
Tveir tipparar hjá Hetti Egilsstöðum voru á skotskónum um helgina þegar þeir fengu báðir 13 rétta. Annar tippaði á Enska seðilinn á laugardaginn og hinn daginn eftir á Sunnudagsseðilinn. Tipparinn sem tippaði á Enska seðilinn og fékk 13 rétta fékk 9,4 milljónir í sinn hlut og var að vonum ánægður. Hann heyrði svo í fé... Lesa meira
getraunir
Hann var heldur betur lukkulegur tipparinn sem fékk 13 rétta á Enska getraunaseðilinn síðastliðinn laugardag, en seðillinn skilaði honum 17.4 milljónum króna í vinning. Tipparinn var orðinn verulega stressaður fyrir síðasta leikinn á getraunaseðlinum en það var viðureign West Ham og Man. City sem hófst klukkan átta á l... Lesa meira
getraunir
Tippari sem styður Víking Ólafsvík vann í gær tæpar 2 milljónir fyrir að vera með 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum hjá Íslenskum getraunum. Tipparinn notaði kerfi S-0-10-128 sem gefur honum möguleika á að setja tvö tákn á tíu leiki og setja eitt merki á þrjá leiki. Alls er kerfið 128 raðir og kostar það 1.664 krónur. Ke... Lesa meira
getraunir
Getraunastarfsemi hefur verið afar öflug í Vestmannaeyjum undanfarna áratugi og má segja að Eyjamenn hafi verið öflugir í tippinu alla tíð. Getraunastarfsemin skiptist á milli ÍBV annarsvegar og KFS hinsvegar og hafa þeir síðarnefndu staðið sig mjög vel og eru meðal söluhæstu félaga landsins. Þau fengu meðal annars 13 ... Lesa meira