Fréttir

getraunir

Tippari með tæpar 2 milljónir á Miðvikudagsseðlinum

12. Feb 2026, 13:28

Tippari sem styður Víking Ólafsvík vann í gær tæpar 2 milljónir fyrir að vera með 13 rétta á Miðvikudagsseðlinum hjá Íslenskum getraunum. Tipparinn notaði kerfi S-0-10-128 sem gefur honum möguleika á að setja tvö tákn á  tíu leiki og setja eitt merki á þrjá leiki. Alls er kerfið 128 raðir og kostar það 1.664 krónur. Kerfið er eitt það vinsælasta hjá Íslenskum getraunum og hefur oft reynst tippurum vel.

getraunir

Getraunaseðlar á meðan á HM stendur

HM seðlar á mánudögum koma í stað Sunnudagsseðlanna í Getraunadeildinni. Allir HM seðlar eru með 65 milljónir tryggðar fyrir 13 rétta.

getraunir

Tipparar á skotskónum

Sá óvenjulegi atburður átti sér stað á sunnudags getraunaseðlinum að sami tipparinn var með alla leikina 13 rétta á tveim getraunaseðlum. Tipparinn sem styður Þrótt í Reykjavík fékk því í sinn hlut tvöfalda vinningsupphæðina eða rúmlega 700 þúsund krónur. Tveir tipparar voru með 13 rétta á Enska getraunaseðlinum síðast... Lesa meira

getraunir

Sunnudagsseðill lokar á laugardegi

Tipparar athugið að lokunartíma getraunaseðlanna í þessari viku og þeirri næstu verður víxlað. Þannig lokar Sunnudagsseðillinn laugardaginn 16. maí  og Enski seðillinn sem lokar venjulega á laugardegi, lokar ekki fyrr en sunnudaginn 17. maí. Er þetta gert þar sem umferðin í ensku úrvalsdeildinni fer fram á sunnudeginum... Lesa meira

getraunir

Þrír með 13 rétta í Enska

Þrír glúrnir tipparar voru með 13 leiki rétta á Enska getraunaseðlinum síðastliðinn laugardag og fá þeir í sinn hlut um 650 þúsund krónur. Einn tipparanna styður við bakið á Fjölni, annar við Víking og sá þriðji styður Breiðablik.

getraunir

Tveir vinir með 13 rétta

Tveir tipparar hjá Hetti Egilsstöðum voru á skotskónum um helgina þegar þeir fengu báðir 13 rétta.  Annar tippaði á Enska seðilinn á laugardaginn og hinn daginn eftir á Sunnudagsseðilinn. Tipparinn sem tippaði á Enska seðilinn og fékk 13 rétta fékk 9,4 milljónir í sinn hlut og var að vonum ánægður. Hann heyrði svo í fé... Lesa meira

Viltu lesa meira?

Skoða allar fréttir