Enginn var með 1. vinning í EuroJackpot í kvöld en þrír heppnir miðahafar voru með 2. vinning. Hver þeirra fær tæplega 98 milljónir króna í sinn hlut. Tveir miðanna voru keyptir í Þýskalandi og einn í Svíþjóð. Þá voru sjö með 3. vinning og fær hver þeirra rúmlega 23,6 milljónir króna. Miðarnir voru keyptir í Finnlandi, Noregi, Króatíu, og fjórir í Þýskalandi.
Enginn var með 1. vinning í Jóker í kvöld, en tveir voru með 2. vinning. Hvor þeirra fær 125 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir í Lottó appinu og í Kúlunni, Réttarholtsvegi.